06. október 2026
Íbúafundur í Sólvangi
Þann 13. október verður íbúafundur í Sólvangi klukkan 16.00 vegna nýs aðalskipulags hreppsins sem er í vinnslu. Hér er slóð á skipulagið í Skipulagsgáttinni: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1004
Allar opinberar tilkynningar frá hreppnum
06. október 2026
Þann 13. október verður íbúafundur í Sólvangi klukkan 16.00 vegna nýs aðalskipulags hreppsins sem er í vinnslu. Hér er slóð á skipulagið í Skipulagsgáttinni: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1004
02. september 2026
Tjörneshreppur vinnur að mótun nýs aðalskipulags. Talin var þörf á að endurskoða aðalskipulagið með hliðsjón af nýrri löggjöf, bæði hvað varðar framsetningu og efnistök og með tilliti til breyttra forsendna. Hreppsnefnd Tjörneshrepps samþykkti 12. ágúst 2026 að kynna vinnslutillögu vegna heildarendurskoðunar aðalskipulagsins og einnig var samþykkt að tillagan verði kynnt í fimm vikur í skipulagsgátt. […]
24. ágúst 2026
Kjörfundur verður haldinn í Sólvangi laugardaginn 29. ágúst klukkan 10.00 til 16.00 vegna kosninganna um mögulegt áframhald á aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
19. apríl 2026
Einungis einn listi barst til kjörnefndar Tjörnes hrepps. T listi Tjörneshrepps hann skipa eftirfarandi: Aðalsteinn J. Halldórsson, Ketilsstöðum Jón Gunnarsson, Árholti Katý Bjarnadóttir, Héðinshöfða 2 Smári Kárason, Breiðuvík Sveinn Egilsson, Sandhólum Hulda Ellý Jónsdóttir, Kvíslarhóli Jónas Jónasson, Héðinshöfða 2 Sigurbjörg Sveinbjörnsdóttir, Mýrarkoti Eyrún Dögg Guðmundsdóttir, Árholti Sigríður Hörn Lárusdóttir, Héðinshöfða 2
10. apríl 2026
Einn framboðslisti hefur borist; framboðsfrestur framlengdur til kl. 12:00, 12. apríl 2026.
01. mars 2026
Athygli er vakin á því að hreppsnefnd hefur ákveðið að styrkja jarðeigendur í Tjörneshreppi til vinnu við að gps-hnitsetja jarðamerki og þinglýsa þeim. Keypt hefur verið gps-tæki sem uppfyllir allar kröfur til verkefnis sem þessa. Hreppurinn hefur einnig ákveðið að greiða fyrir þá sérfræðivinnu sem þarf til að klára svona verkefni. Auk þess mun hreppurinn […]
28. febrúar 2026
Íbúafundur verður í Tjörneshreppi laugardaginn 28. febrúar klukkan 20.00. Kvenfélagið Aldan sér um veitingar á fundinum.
20. febrúar 2026
Nýr vefur Tjörneshrepps er kominn í loftið með bættri framsetningu upplýsinga, fréttum og fundargerðum á einum stað.