Tjörneshreppur Logo
Til baka í tilkynningar

Landamerki jarða

01. mars 2026

Athygli er vakin á því að hreppsnefnd hefur ákveðið að styrkja jarðeigendur í Tjörneshreppi til vinnu við að gps-hnitsetja jarðamerki og þinglýsa þeim. Keypt hefur verið gps-tæki sem uppfyllir allar kröfur til verkefnis sem þessa. Hreppurinn hefur einnig ákveðið að greiða fyrir þá sérfræðivinnu sem þarf til að klára svona verkefni. Auk þess mun hreppurinn annast þá umsýslu sem jarðeigendur þurfa mögulega hjálp við.