Tjörneshreppur Logo
Til baka í tilkynningar

Kynning á vinnslutillögu nýs Aðalskipulags Tjörneshrepps 2023-2035

02. september 2026

Tjörneshreppur vinnur að mótun nýs aðalskipulags. Talin var þörf á að endurskoða gildandi aðalskipulagendurskoða aðalskipulagið með hliðsjón af nýrri löggjöf, bæði hvað varðar framsetningu og efnistök og með tilliti til breyttra forsendna.

Hreppsnefnd Tjörneshrepps samþykkti 12. ágúst 2026 að kynna vinnslutillögu vegna heildarendurskoðunar aðalskipulagsins og einnig var samþykkt að tillagan verði kynnt í fimm vikur í skipulagsgátt. Hægt er að nálgast vinnslutillöguna og setja inn athugasendir á Skipulagsgátt, mál nr. 1004/2026.

https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1004

Hreppsnefndin boðar til íbúafundar síðar haustið 2026 vegna kynningar á vinnslutillögunni. Fundurinn verður haldinn Sólvangi og verður auglýstur síðar. Að loknum fundi gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til þess að koma með athugasemdir og er þeim bent á að senda þær á Skipulagsgátt eða á skrifstofa@tjorneshreppur.is,  en athugasemdafrestur er til og með 1. október 2026.