Einn listi barst – framboðsfrestur framlengdur
10. apríl 2026
Yfirkjörstjórn Tjörneshrepps hefur borist einn listi til framboðs í sveitarstjórnakosningum,
T – Tjörneslistinn.
Samkvæmt 29. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna:
Þar sem aðeins einn framboðslisti kemur fram skal yfirkjörstjórn framlengja framboðsfrest um tvo sólarhringa. Komi ekki fram nýr framboðslisti áður en þeim fresti lýkur verður framkominn framboðslisti sjálfkjörinn.
Frestur til að skila inn framboðslista er því framlengdur til kl. 12:00 á sunnudaginn 12. apríl 2026.
